Bendi fólki á endurbætta heimasíðu

Ég vil benda fólki á að héðan í frá munu mín skrif fara fram á heimasíðu minni http://www.hjorturgud.com/ endilega fylgist með mínum færslum þar.

Íbúafundur vegna sölu Reykjanesbæjar á hlut í HS orku

Öllu var flaggað á íbúafundinum sem var í gær í bíósal Duushúsa í Reykjanesbæ.  Þetta er frekar þröngur og lítill salur og ekki fengu allir sæti sem vildu.  En samt sem áður var fólk tilbúið til að standa þarna frá því klukkan átta til tæplega ellefu og vakti það furðu mína á þessu fallega sumarkvöldi.
Þegar ég horfði á glærusýningu Böðvars Jónssonar og Árna Sigfússonar fór stundum hrollur um mig.  Þá sérstaklega þegar Árni tók uppá því að sýna hversu smátt landsvæðið er sem RNB er að kaupa af HS orku.  Það gerði hann með fýluköllum og tilvitnunum sem enginn hafði heyrt, t.a.m. „Ég hélt að við værum að kaupa Svartsengi, Grindavík, Jónu Kristínu og Petrínu og...“
Myndin er fengin að láni hjá VF.is Þrátt fyrir að hafa ákveðið að mæta á þennan mikla fund með því hugarfari að hægt væri að snúa mínu hugarfari.  Ég er nefnilega ekkert endilega svo fjarri því að telja þetta réttmætar aðgerðir, en það sem gerir mig alveg æfan er umgjörðin, undirbúningurinn og aðferðarfræðin við allan gjörninginn. Máli mínu til stuðnings vil ég m.a. nefna að þetta stærsta mál í sögu bæjarins var tekið fyrir þegar bæjarstjórn var í sumarfríi og þannig erfiðara fyrir alla að beita sér af fullum krafti í málinu.  Einnig vil ég nefna að ekki var leitað eftir öðrum tilboðum í hlut Reykjanesbæjar og ekki var gert annað verðmat og voru málin sett þannig upp að GGE væri að gefa RNB milljarða...
En málin eru mjög einföld þegar litið er til eftirspurnar eftir grænni endurnýjanlegri orku eins og þeirri sem HS orka selur.  Eftirspurnin hefur síður en svo dvínað þannig að ætla má að þrátt fyrir hrun í eiginfjárstöðu félagsins að eftirspurning hefði togað verðgildi félagsins upp á móti.
Í lokin vil ég vitna í orð Böðvars Jónssonar: „ef einhver fer fram á nýtt verðmat er sá hinn sami annað hvort að leita sér að vinnu eða ber ekki hag eigenda að leiðarljósi.“ Ég held það sé ca. svona sem hann sagði það, ef vitlaust er haft eftir honum þá biðst ég afsökunar...

Myndina fékk ég lánaða hjá Víkurfréttum.


Ráðningar hjá „opinberum“ stofnunum

Ég skil ekki alveg af hverju ætti ekki að ráða í lykilstöður innan bankanna án auglýsingar.  Auðvitað sé ég hvernig það er þægilegra að ráða þann sem hendi er næst innan vinahópsins ef svo er en ég skil hins vegar ekki alveg af hverju menn eru að taka slíka sénsa eins og staðan er núna.

Orð eins og gagnsæi eru algjörlega búin að missa alla meiningu þar sem allir hoppa upp á stól og góla „gagnsæi" en meina svo þveröfugt.  Þess vegna er mjög mikilvægt að ráðist verði í alvöru gagnsæi svo hægt sé að vinna upp hið glataða traust á stjórnsýslunni.

Í raun sé ég enga gilda ástæðu fyrir því að ekki sé auglýst í eina einustu stöðu innan stjórnsýslunnar.  Hvort sem það er í hlutafélögum sem ríkið á, sbr. bankarnir, eða opinberar stofnanir.

Vil ég því hvetja ríkisstjórnina, sem ég barðist svo hart fyrir því að næði kosningu, til að taka afar hart á þessum málum.


mbl.is Brýnt að auglýsa bankastöður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Facebook í öllu sínu veldi

Ég rakst á mikla og harða umræðu á vefnum sem hófst vegna særinda einnar stúlku sem hafði „misst" Facebook vin.  Margir höfðu orð á því að þeim þætti fullkomlega eðlilegt að „hreinsa til" í vinalistanum sínum eins og sagt er og ég er svosem alveg eins sammála því en þegar ég velti þessu fyrirbæri fyrir mér þá ver ég eiginlega svolítið lost.

Ég er sæmilega virkur á Facebook [en kalla það ekki Fésið, Feisið, Bókina eða neitt annað ... bara Facebook] og á það til að kíkja á síður vina þegar ég fæ tilkynningu um nýjar myndir og þess háttar.  Svo hendi ég auðvitað inn myndum endrum og sinnum af mér og mínum en ég átta mig ekki alveg á því hvað það er sem fólk vill ekki að aðrir sjái um sig.

Þegar ég velti fyrir mér mínum Facebook prófíl þá dettur mér ekkert í hug sem mér þætti hræðilegt að einhver jafnvel alveg ókunnugur myndi sjá eða lesa.  Það sem ég geri er eiginlega ekkert þannig lagað leyndarmál, annars væri ég ekki að opinbera líf mitt með öllu á veraldarvefnum.  Facebook vinir mínir eru s.s.á. ekki einu sinni allir vinir mínir.  Suma þekki ég ekki einu sinni í sjón J [einn af fylgifiskum þess að fara í prófkjör hlýtur að vera :]

En hvað ætli reki mann áfram í að uppfæra reglulega sína persónulegu hagi.  Hvað gerir það að verkum að fyrsta verk þeirra sem koma út úr skápnum eða slíta samvistum sínum við maka er að fara og uppfæra Facebook prófílinn?  Af hverju ætti ég að breyta ástandinu á sambandi mínu við Vilborgu í „it‘s complicated" þegar sambandið stendur höllum fæti?  Kannski til að fá nokkrar innantómar athugasemdir með rafrænum knúsum og kossum og þess háttar.

Mesti og besti kosturinn við Facebook held ég samt að sé Farm Town leikurinn.  Hann er algjör draumur í dós J

Ps. ég á 501 „vin" á Facebook.  Flest alla gæti ég nefnt með nafni ef heilinn virkaði sem skyldi, ef þú hittir mig ekki spyrja samt.


Halli Kópavogs er hátíð m.v. Reykjanesbæ

Það má segja að ég öfundi íbúa Kópavogs í ljósi nýrra ársreikninga þeirra og okkar hérna í Reykjanesbæ.  Þessi setning hljómar kannski örlítið afkáralega nema málið sé skoðað í réttu samhengi.

Skv. tölum Hagstofunnar búa 14.172 í Reykjanesbæ*árið 2009 en á sama tíma búa 29.976 í Kópavogi.  Ef hallinn er borinn saman „per capital" sem er uppáhalds reikningskúnst Íslendinga kemur munurinn klárlega í ljós.  Alls er halli Kópavogs ca. kr. 9.600.000.000,- á meðan hallinn er ca. kr. 8.000.000.000,- hér í okkar yndislega Reykjanesbæ.  Þannig að ef við reiknum þetta út hlið við hlið þá kemur þetta einhvern veginn svona út:

Reykjanesbær:

8.000.000.000 / 14.172 = 564.493 per íbúa

Kópavogur:

9.600.000.000 / 29.976 = 320.256 per íbúa


Þetta sýnir okkur að við íbúar Reykjanesbæjar erum komnir langleiðina í tvöfalda skuldasúpu á við íbúa Kópavogs.

Já það er kannski ekkert svo slæmt að búa í Kópavogi eftir allt saman... þeir eiga a.m.k. ennþá sínar fasteignir.  Við eigum bara Duus hús og Stekkjarkot.

 

 

*    Hafnir:  142 íbúar
      Keflavík:  8169 íbúar
      Vallarheiði: 1140 íbúar
      Njarðvík:  4721 íbúar


mbl.is 9,6 milljarða halli hjá Kópavogsbæ
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Endurskoðun verðtryggingar

Sigmundur Ernir skrifar pistil á Pressuna þar sem hann talar um að þverpólitísk samstaða sé að myndast um endurskoðun verðtryggingarinnar.

Ég vona svo sannarlega að svo sé en sé samt ekki alveg fyrir mér hvernig slíkt verður framkvæmt.  Ef ég skil hann rétt er hann í raun ekki að tala um að afnema vertrygginguna heldur eingöngu að „endurskoða" hana.  Spurning þá hvort þeir sjái fyrir sér að taka óvinsæla þætti úr neysluvísitölunni.

Ég hlustaði á fyrirlestur frá starfsmanni Hagstofunnar í vetur þar sem hún sagði okkur frá því að á góðæristímabilinu hafi endalaust verið kallað á að taka húsnæðisverð útúr vísitölunni en allir eru þó sammála um það núna að það hefði verið óráð þar sem húsnæðisverðið lækkaði vísitöluna þegar allt hrundi.

S.s.á. má svo sem segja sér að tóbak og áfengi geri ekkert nema að hækka í verði og því sé ekkert því til fyrirstöðu að taka það úr vísitölunni en hvar á að stoppa?  Eigum við að taka eldsneyti úr líka þar sem eðli bensínverðs virðist vera að fara upp á við?

Æ ég veit það ekki satt bezt að segja... er ekki langbest að vera bara laus við þetta skrímsli með öllu?


Allt uppi á borðinu

Mér finnst þetta skref Samfylkingarinnar afar jákvætt og vona að í framtíðinni getum við haft alla styrki og allt bókhald uppi á borðinu.  Þannig er enginn feluleikur, enginn vafi og ekkert ráðrúm fyrir "svindl".

Einnig vil ég benda á það að þjóðfélagið árið 2006 og 2009 er eins og svart og hvítt.  Hvort sem það voru kosningar eða prófkjör á hápunkti góðærisins þá verður það að segjast eins og er að það þurfti mikla peninga til að reka slíkt ævintýri en bæði nýliðin kosningabarátta til Alþingis og einnig komandi sveitastjórnakosningar á vormánuðum 2010 verða af allt öðrum toga.

Algeng skoðun sem heyrðist fyrir 25. apríl sl. var að fólk ætlaði ekki að kjósa þá flokka sem greinilega eyddu miklum peningum í háglansbæklinga og sjónvarpsauglýsingar og tel ég það vera jákvæða þróun.

Sjálfur tók ég þátt í prófkjöri Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi í byrjun þessa árs og komst af með u.þ.b. 10.000 króna eyðslu auk 13.000 Vildarpunkta (þurfti að fljúga til Vestmannaeyja :)

Ég held að það ætti að vera takmark allra framboða á næsta ári að eyða sem minnstu í auglýsingar og þess háttar og þeim mun meira að taka sig til og fara til fólksins og notast við gamaldags kosningaaðferðir, því það er fyrst og fremst það sem virkar.


mbl.is Samfylkingin aflaði 67 milljóna styrkja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kemur ekki á óvart

Nei þessi frétt kemur alls ekki á óvart.  Þetta hef ég sannarlega í vinnuheimsóknum til annara landa.  Oft hef ég hugsað hvað það væri nú gott að vera búinn að vinna kl. 16 á daginn, en ég verð víst að hanga 2-3 klst lengur en það í minni vinni Tounge

Íslendingar hafa alla tíð verið afskaplega vinnusöm og dugleg þjóð sem kallar ekki allt ömmu sína.  Meira að segja útrásarvíkingarnir voru þekktir fyrir að vera alltaf í vinnunni.  Þeir þurftu greinilega að vinna hörðum höndum við að knésetja íslenzkt atvinnulíf.


mbl.is Íslendingar strita mest
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þjóðaratkvæðagreiðsla er eingöngu ráðgefandi

Eins og íslenzkur lagarammi er núna er útkoma þjóðaratkvæðagreiðslu eingöngu ráðgefandi.  Hvernig sem ríkisstjórnin vinnur svo úr því.  Ætli talsmenn tvöfaldrar atkvæðagreiðslu um ESB aðild hafi vitað af þessu?

Menn innan Sjálfstæðisflokksins og svo sannarlega innan vébanda Vinstri grænna hafa talað fyrir þessari leið þótt hún sé útaf borðinu núna.  En ég velti því fyrir mér hvers vegnar þessir sömu aðilar hafi aldrei haft hátt um þá staðreynd að niðurstaða þjóðarinnar sé langt því frá eitthvað úrslitavald.

Ég er búinn að fylgjast örlítið með ESB umræðunum á Alþingi eftir hádegið í dag og ég get ekki sagt annað en að ég sárvorkenni Illuga greyinu því hann langar svo mikið til Brussel.  Í hverju orði sér hver sem vill sjá að hann er ekki að meina neitt sem hann segir og þ.a.l. koma ræður hans afkáralega og undarlega út.  Sérstaklega í ljósi þess að hann ræðir helst til eingöngu um fundarsköp og annað sem engu máli skiptir.

Undarlegar yfirlýsingar Sjálfstæðismanna alltaf hreint um aðgerðaleysi en á sama tíma þvælast þeir fyrir framkvæmdunum með hjákátlegu tísti sem þeir trúa ekki einu sinni sjálfir.


Tilfærsla frídaga og sumartími í boði Sigmundar?

Félagi Sigmundur Ernir, þingmaður Samfylkingarinnar, hefur lagt það til að frídagar sem skeri í sundur vinnuvikuna verði færðir til næstu helgar.  Svo vildi til að ég ræddi nákvæmlega þetta mál við mína ástkæru móður við kvöldverðarborðið í kvöld og við gátum ekki verið meira sammála um þetta mál nema hvað varðar kristilega frídaga, t.a.m. nýliðinn uppstigningardag sem ákveðið sé að komi á þessum degi og einnig með 17. júní sem sannarlega er fæðingardagur Jóns Sigurðssonar.  Ég verð að vera mótfallinn móður minni í því að þeir dagar séu fastir í stein.  Það er einfaldlega þannig að auðveldara er að eiga langa helgi en að vinna mánudag til miðvikudag og svo föstudag.  Frídagurinn fer einfaldlega í nettan pirring yfir að daginn eftir sé einn vinnudagur.

Ég sé ekki t.a.m. af hverju ekki sé hægt að halda uppá þjóðhátíð okkar Íslendinga föstudaginn eftir 17. júní.  Af hverju má ekki halda uppá afmæli Jóns „forseta" helga eftir eins og almenningur gerir æði oft svo fleiri mæti í teitið.  Kannski er ég bara svona frjálslegur í hugsunarhætti.

En hvað endurupptöku sumartíma eins og Sigmundur leggur einnig til þá er ég beggja blands.  Líklega eru efasemdir mínar sprottnar upp frá því að ég á full í fangi með að vakna kl. 8 og á erfitt með að hugsa mér að rífa mig á lappir fyrir kl. 6 á morgnanna.  Þá einkum og sér í lagi í ljósi þess að bjart og gott er líka kl. 19 yfir hið íslenska hásumar.  En hver veit, máski færir þetta íslenskri þjóð aukinn kraft og þrek í amstri dagsins.


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband